Atvinna með stuðningi
Atvinna með stuðningi er árangursrík leið í atvinnumálum fyrir þá er þurfa aðstoð við að komast út á almennan vinnumarkað. AMS felur í sér víðtækan stuðning við þá sem hafa skerta vinnugetu vegna andlegrar og / eða líkamlegrar fötlunar, hjálp við að finna rétta starfið og veita stuðning á nýjum vinnustað.
Þeir sambandsaðilar sem sinna atvinnu með stuðningi eru:
AMS í Reykjavík s. 533 1388 Atvinna með stuðningi hefur það markmið að hjálpa fötluðum út á hinn almenna vinnumarkað, með stuðningi og eftirfylgd.
Kertaverksmiðjan Heimaey s. 481 2905 Áhersla er lögð á að Heimaey verði atvinnumiðstöð fatlaðra þar sem fram fari starfsmat, starfsráðgjöf, atvinnuleit, starfsþjálfun, vernduð vinna og aðstoð við atvinnum með stuðningi.
Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur s. 461 4606 Mikil samvinna er með AMS á Akureyri og Plastiðjunni Bjargi - Iðjulundi. Einstaklingar sem eru í starfsþjálfun / starfsendurhæfingu á PBI og fara á almennan vinnumarkað njóta stuðnings og eftirfylgdar starfsfólks AMS. Forstöðumaður AMS á Akureyri er Hulda Steingrímsdóttir s.460 1420, netfang: huldas@akureyri.is
|