Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Hæfing

Markmið hæfingar er að draga úr áhrifum fötlunar og auka hæfni fólks með fötlun til starfa og taka þátt í daglegu lífi. Aðilar sem sinna hæfingu eru eftirfarandi:

Bjarkarás   s. 568 5330

Fjöliðjan s. 437 2010
Fjöliðjan sinnir dagþjónustu fyrir fatlaða

Hæfingarstöðin Bjarkarás  s. 568 5330
Hæfingarstöðin Bjarkarás er fyrir fólk með þroskahömlun.  Meginmarkmið með starfsemi Bjarkaráss er að veita einstaklingsbundna og fjölbreytta þjónustu. 

Hæfingarstöðin Hvesta  s. 456 3290
Hæfingarstöðin Hvesta er til húsa við Aðalstræti á Ísafirði.

Hæfingarstöðin í Keflavík s. 421 2362
Á Hæfingarstöðina geta um 20 þjónustunotendur sótt þjónustu. Hæfingarstöðin þjónustar fólk með allar tegundir fatlana. Allir notendur eru 18 ára og eldri. 

Hæfingarstöðin við Skógarlund s. 562 1754
Hæfingarstöðin veitir fólki, ( létta vinnu, þjálfun, umönnun og afþreyingu) sem fötlunar sinnar vegna þarf sérhæfða og einstaklingsmiðaða þjónustu. Þjónustunotendur eru fólk með fötlun sem eru eldri en 16 ára. 

Stólpi      s. 471 1090
Stólpi er vinnu- og verkþjálfunarstaður með félagslega- og verklega þjálfun.  Auk þess er þar veitt ýmiskonar önnur þjálfun, umönnun og afþreying. 

Vinnustofan Hólaberg   s. 567 7745 / 587 7710

VISS   s. 482 1803
Hæfing er einn hluti af starfsemi VISS. Þar er einstaklingum með verulega skerta starfsgetu boðin þjónusta. Markmið hæfingar eru:

  • Að veita einstaklingum með verulega skerta starfsgetu þjónustu.
  • Að efla færni til daglegra athafna.
  • Að viðhalda andlegri og líkamlegri færni einstaklinga
  • Að njóta augnabliksins og upplifa tilhlökkun.

Í hæfingu hefur hver einstaklingur eigið skipulag yfir daginn og unnið er að ákveðnum einstaklingsmarkmiðum.  

 

 

Hlutverk - Samtök um vinnu og verkþjálfun  - Kársnesbraut 110 -  200 Kópavogur - Sími 554 3277