Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Starfsendurhæfing

Starfsendurhæfing er mikilvægur þáttur í endurhæfingu einstaklinga sem hafa orðið fyrir áföllum og eykur möguleika þeirra til starfa. Þeir aðilar sem bjóða starfsendurhæfingu eru eftirtaldir:

Fjöliðjan s. 431 2994 / 431 3136
Fjöliðjan hefur verið í góðri samvinnu við Svæðissvæðismiðlun Vesturlands.

Hringsjá  s. 562 2840
Hringsjá veitir náms- og starfsendurhæfingu einstaklingum sem eru eldri en 18 ára -sem hafa orðið fyrir sjúkdómum, slysum eða öðrum áföllum og þurfa að endurmeta og styrkja stöðu sína. Þeir þurfa að vera færir um að nýta sér það sem Hringjsá býður og hafa þörf fyrir þá þjálfun og stuðning sem hún veitir.

Klúbburinn Geysir  s. 551 5166
Starfsemi klúbbsins skiptist í tvo meginþætti: Starf innan klúbbsins í skrifstofu-, eldhús-, og viðhaldsdeild, og aðstoð við félaga til að finna störf á almennum vinnumarkaði. Í klúbbnum er rekin starfsleit, ráðning til reynslu (RTR) og er það atvinnuform sem klúbburinn leggur mest upp úr.

Múlalundur  s. 562 8500
Reynt er að hafa störfin frekar fjölbreytt, aðgengileg og þannig að starfsfólkið fái að njóta sín. Andstætt mörgum öðrum fyrirtækjum er æskilegt að hafa starfsmannaveltuna sem mesta þ.e.a.s. að koma sem flestum út á hinn almenna vinnumarkað. Reynt er að byggja upp raunhæfara sjálfsmat og aukið sjálfstraust. Markmiðið er að útvega sem flestum vinnu sem fá ekki vinnu á hinum almenna vinnumarkaði og koma þeim aftur út á  vinnumarkaðinn.

Plastiðjan Bjarg -Iðjulundur  s.461 4606                                                                  Starfsendurhæfing eða atvinnuleg endurhæfing er fyrir þá sem þurfa að endurhæfa sig til starfa að nýju. Ástæður þess geta verið af ýmsum toga, s.s. sjúkdómar, slys eða langtíma atvinnuleysi.   Markmiðið með starfsendurhæfingu er að verða fær til vinnu á almennum vinnumarkaði. Einstaklingar sem fara á almennan vinnumarkað njóta stuðnings AMS.

Reykjalundur  s. 585 2000
Ákveðið hefur verið að auka atvinnutengda endurhæfingu á Reykjalundi. Við komu er lögð áhersla á að greina hæfni, aðstæður og styrkleika hvers og eins. Að því loknu er gerður samningur um markmið og leiðir að settu marki út frá þörfum einstaklingsins. Mikilvægt er að vera virkur í meðferðinni. Unnið er einstaklingsbundið og í hópum. Megináhersla í endurhæfingunni er á vinnueflingu með því að auka vinnuþol með fræðslu, æfingum og vinnuprófun við ýmis verk, bæði innan staðar og utan. Einnig er lögð áhersla á vinnuaðlögun þar sem athugað er hvort hægt sé að breyta vinnuumhverfi, vinnutíma og vinnuferli. Stuðningur við atvinnuumsóknir og athugun á vinnumarkaði er einnig hluti af endurhæfingunni.

Fréttir

1.7.2010
Sumarlokun
Viss, vinnu- og hæfingarstöðvar á Selfossi og í Þorlákshöfn verða lokaðar frá dags: 05.-30.júlí. 
sjá nánar >>
9.4.2010
Fyrsta uppskera ársins

Lífrænt ræktuðu gúrkurnar úr gróðurhúsi Bjarkaráss eru nú komnar í sölu og styttist óðum í tómatauppskeru. Gróðurhúsið er opið alla virka daga kl. 9 - 12 og 13 - 16.

Í gróðurhúsi Bjarkaráss

sjá nánar >>
2.12.2009
Fjöliðjan afmæli

 

Fjöliðjan 20 ár að Dalbraut 10, Akranesi

 

Þann 22. október sl. voru 20 ár  liðin frá því að Fjöliðjan vinnustaður og hæfing  tók formlega til starfa þá í nýju og glæsilegu húsi að Dalbraut 10.

Í tilefni af þessum tímamótum var aðstandendum allra sem vinna og sækja þjónustu boðið í afmæli á virkum vinnudegi og starfsemin skoðuð.

 
sjá nánar >>

Á undanförnum árum hefur starfsfólk Fjöliðjunnar á Akranesi meðal annars unnið að því að setja öll kort Landmælinga Íslands í kortakápur, sem er mikil nákvæmnisvinna.  Öll vinna hefur verið eins og best verður á kosið og tímaáætlanir ávallt staðist. Samstarfið hefur verið mjög gott og einstaklega ánægjulegt.

Þorvaldur Bragason forstöðumaður upplýsingasviðs Landmælinga Íslands

 

 

Það hefur verið gott að skynja stolt starfsmanna rekstrardeildar Íslandsbanka af því að eiga í samstarfi við Klúbbinn Geysi og jafnframt ánægjulegt að sjá nýja samstarfsmenn vaxa af verkum sínum.
               Kristín Baldursdóttir, rekstrardeild Íslandsbanka

Á undanförnum árum hafa viðskipti Nóa-Síríusar við Örva vaxið hratt. Þetta byggist á samkeppnishæfu verði, en ekki síður á framúrskarandi þjónustu og vörugæðum. Það hefur þannig ekki vafist fyrir okkur að taka vörur frá Örva fram yfir svipaðar vörur erlendis frá og er það auðvitað sérstakt fagnaðarefni .Við þökkum fyrir ánægjuleg viðskipti sem við vonumst til að verði áfram vaxandi og óskum starfsfólki Örva velfarnaðar.
                  Finnur Geirsson, framkvæmdastjóri Nóa-Síríusar

Besta ehf, gerði pökkunarsamning við Blindravinnustofuna árið 2002. Samstarfið hefur gengið sérlega vel, stjórnendur hafa verið liprir varðandi útfærslur, afgreiðslur og frágang. Vinnan við vöruna er að jafnaði óaðfinnanleg og þökkum við starfsfólki Blindravinnustofunnar góð vinnubrögð. Við mælum með þjónustunni og hvetjum öll fyrirtæki sem þurfa á pökkunar- og eða merkingaþjónustu að halda að kynna sér hana.

Friðrik Ingi Friðriksson, framkvæmdastjóri Besta ehf.

Starfsfólk Vinnustofu Hólabergs, Iðjubergi hefur pakkað inn fyrir okkur bókum og blöðum í fjölda ára og ætíð veitt okkur trausta, heiðarlega og áreiðanlega þjónustu.
               Sigríður Hafdís Benediktsdóttir, Þjónustudeild Eddu útgáfu

Ég mæli með Heimaeyjarkertunum því þau eru stílhrein, falleg, brennslutíminn langur og henta vel við brúðkaup, jarðarfarir, afmæli, skírnir og í sumarbústaðinn.
                   
Ómar í Blómavali

Við stóðum fyrir erfiðu vandamáli sem var að geta endurnýtt herðatrén. Til þess að mögulegt sé að endurnýta þau þarf að flokka þau eftir gerðum og stærðum. Örvi fær þarna nokkuð stöðugt verkefni sem reynir á formskyn og talningar og við, hjá Hýsingu, fáum öruggar afhendingar af flokkuðum herðatrjám tilbúnum til notkunar.  Með þessu samstarfi stuðlum við að nýtingu verðmæta og ekki síst því að starfsþjálfunarvinnustaður eins og Örvi haldi velli.  Þess má geta að þetta samstarf hefur óbeint skilað því að einn af starfsmönnum Örva til margra ára starfar nú hjá Hýsingu.
                  Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Hýsingar

Umferðarráð og Blindravinnustofan hafa í mörg ár átt góða samvinnu um gerð hljóðbóka á snældum fyrir umferðarskólann Unga Vegfarendur. Sú nýbreytni var tekin upp á þessu ári að nota geisladiska í stað hljóðsnældu. Hljóðbókunum er dreift til allra 4, 6 og 7 ára barna á landinu. Starfsfólk Blindravinnustofunnar afgreiðir fljótt og vel það sem það er beðið um að gera og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir verkið.

Margrét Sæmundsdóttir, fræðslufulltrúi Umferðarstofu

Kertin frá Heimaey eru meðal vinsælustu kerta hjá okkur, sérstaklega kubbarnir og píramídarnir, en við höfum skreytt þá fyrir viðskiptavini okkar. Ég mæli hiklaust með kertum frá Heimaey, fyrir öll tækifæri.  
               Sunneva í Garðheimum

 

 

Á undanförnum árum hefur starfsfólk Fjöliðjunnar á Akranesi meðal annars unnið að því að setja öll kort Landmælinga Íslands í kortakápur, sem er mikil nákvæmnisvinna.  Öll vinna hefur verið eins og best verður á kosið og tímaáætlanir ávallt staðist. Samstarfið hefur verið mjög gott og einstaklega ánægjulegt.

Þorvaldur Bragason forstöðumaður upplýsingasviðs Landmælinga Íslands

 

 

Á döfinni
 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  
SAMBANDSAÐILAR


Starfsemi vinnustaða fatlaðra og hæfingarstöðva hefur stuðlað að:

  • Auðugra lífi ótal einstaklinga
  • Auknu fjárhagslegu sjálfstæði
  • Nýjum  tækifærum
  • Sjálfstrausti
  • Almennu heilbrigði
  • Fjárhagslegum og félagslegum ávinningi samfélagsins

Hlutverk - Samtök um vinnu og verkþjálfun  - Kársnesbraut 110 -  200 Kópavogur - Sími 554 3277