Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Starfsþjálfun

Starfsþjálfun hefur almennt það að markmiði að gera fatlaða hæfari til að takast á við störf á almennum vinnumarkaði.  Aðilar sem sinna starfsþjálfun eru eftirfarandi:

Hringsjá  s. 562 2840
Hringsjá veitir starfsþjálfun einstaklingum sem eru eldri en 18 ára -sem hafa orðið fyrir sjúkdómum, slysum eða öðrum áföllum og þurfa að endurmeta og styrkja stöðu sína. Þeir þurfa að vera færir um að nýta sér það sem Hringjsá býður og hafa þörf fyrir þá þjálfun og stuðning sem hún veitir.

Kertaverksmiðjan Heimaey  s. 481 2905
Áhersla er lögð á að Heimaey verði atvinnumiðstöð fatlaðra þar sem fram fari starfsmat, starfsráðgjöf, atvinnuleit, starfsþjálfun, vernduð vinna og aðstoð við atvinnum með stuðningi.

Múlalundur  s. 562 8500
Reynt er að hafa störfin frekar fjölbreytt, aðgengileg og þannig að starfsfólkið fái að njóta sín. Andstætt mörgum öðrum fyrirtækjum er æskilegt að hafa starfsmannaveltuna sem mesta þ.e.a.s. að koma sem flestum út á hinn almenna vinnumarkað. Reynt er að byggja upp raunhæfara sjálfsmat og aukið sjálfstraust. Markmiðið er að útvega sem flestum vinnu sem fá ekki vinnu á hinum almenna vinnumarkaði og koma þeim aftur út á  vinnumarkaðinn.

Plastiðjan Bjarg - Iðjulundur s. 461 4606     Markmið í starfsþjálfun  er að þjálfa fatlaða til starfa og meta möguleika þeirra til vinnu á almennum vinnumarkaði. Starfsþjálfun er fyrir  fatlaða sem hafa litla eða enga vinnureynslu .

Viss s. 482-1803/482-1815
Reynt er að hafa störfin frekar fjölbreytt, aðgengileg og þannig að starfsfólkið fái að njóta sín. Reynt er að byggja upp raunhæfara sjálfsmat og aukið sjálfstraust. Markmiðið er að útvega sem flestum vinnu sem fá ekki vinnu á hinum almenna vinnumarkaði. 

Örvi starfsþjálfunarstaður  s. 554 3277

  • Starfsprófun:  Allir sem byrja í Örva fara í þriggja mánaða starfsprófun til að meta heildstætt atvinnumöguleika og getu viðkomandi starfsmanns.
  • Starfsþjálfun:  Í starfsþjálfun í Örva er megináhersla lögð á rétt vinnubrögð, góðar starfsvenjur, aukið starfsþrek og félagsleg samskipti.
  • Eftirfylgd á almennum vinnumarkaði:  Að lokinni starfsþjálfun í Örva er veitt víðtæk eftirfylgd í störfum á almennum vinnumarkaði. Starfsráðgjafar  Örva koma að málinu í upphafi en síðan taka starfsmenn Atvinnu með stuðningi á Reykjanesi við.

Fleiri staðir sinna starfsþjálfun, mismikið þó, þeir eru m.a.  Ásgarður,  Fjöliðjan og Blindravinnustofan.

 

Fréttir

1.7.2010
Sumarlokun
Viss, vinnu- og hæfingarstöðvar á Selfossi og í Þorlákshöfn verða lokaðar frá dags: 05.-30.júlí. 
sjá nánar >>
9.4.2010
Fyrsta uppskera ársins

Lífrænt ræktuðu gúrkurnar úr gróðurhúsi Bjarkaráss eru nú komnar í sölu og styttist óðum í tómatauppskeru. Gróðurhúsið er opið alla virka daga kl. 9 - 12 og 13 - 16.

Í gróðurhúsi Bjarkaráss

sjá nánar >>
2.12.2009
Fjöliðjan afmæli

 

Fjöliðjan 20 ár að Dalbraut 10, Akranesi

 

Þann 22. október sl. voru 20 ár  liðin frá því að Fjöliðjan vinnustaður og hæfing  tók formlega til starfa þá í nýju og glæsilegu húsi að Dalbraut 10.

Í tilefni af þessum tímamótum var aðstandendum allra sem vinna og sækja þjónustu boðið í afmæli á virkum vinnudegi og starfsemin skoðuð.

 
sjá nánar >>

Við stóðum fyrir erfiðu vandamáli sem var að geta endurnýtt herðatrén. Til þess að mögulegt sé að endurnýta þau þarf að flokka þau eftir gerðum og stærðum. Örvi fær þarna nokkuð stöðugt verkefni sem reynir á formskyn og talningar og við, hjá Hýsingu, fáum öruggar afhendingar af flokkuðum herðatrjám tilbúnum til notkunar.  Með þessu samstarfi stuðlum við að nýtingu verðmæta og ekki síst því að starfsþjálfunarvinnustaður eins og Örvi haldi velli.  Þess má geta að þetta samstarf hefur óbeint skilað því að einn af starfsmönnum Örva til margra ára starfar nú hjá Hýsingu.
                  Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Hýsingar

Besta ehf, gerði pökkunarsamning við Blindravinnustofuna árið 2002. Samstarfið hefur gengið sérlega vel, stjórnendur hafa verið liprir varðandi útfærslur, afgreiðslur og frágang. Vinnan við vöruna er að jafnaði óaðfinnanleg og þökkum við starfsfólki Blindravinnustofunnar góð vinnubrögð. Við mælum með þjónustunni og hvetjum öll fyrirtæki sem þurfa á pökkunar- og eða merkingaþjónustu að halda að kynna sér hana.

Friðrik Ingi Friðriksson, framkvæmdastjóri Besta ehf.

Starfsfólk Vinnustofu Hólabergs, Iðjubergi hefur pakkað inn fyrir okkur bókum og blöðum í fjölda ára og ætíð veitt okkur trausta, heiðarlega og áreiðanlega þjónustu.
               Sigríður Hafdís Benediktsdóttir, Þjónustudeild Eddu útgáfu

Kertin frá Heimaey eru meðal vinsælustu kerta hjá okkur, sérstaklega kubbarnir og píramídarnir, en við höfum skreytt þá fyrir viðskiptavini okkar. Ég mæli hiklaust með kertum frá Heimaey, fyrir öll tækifæri.  
               Sunneva í Garðheimum

 

 

Umferðarráð og Blindravinnustofan hafa í mörg ár átt góða samvinnu um gerð hljóðbóka á snældum fyrir umferðarskólann Unga Vegfarendur. Sú nýbreytni var tekin upp á þessu ári að nota geisladiska í stað hljóðsnældu. Hljóðbókunum er dreift til allra 4, 6 og 7 ára barna á landinu. Starfsfólk Blindravinnustofunnar afgreiðir fljótt og vel það sem það er beðið um að gera og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir verkið.

Margrét Sæmundsdóttir, fræðslufulltrúi Umferðarstofu

Það hefur verið gott að skynja stolt starfsmanna rekstrardeildar Íslandsbanka af því að eiga í samstarfi við Klúbbinn Geysi og jafnframt ánægjulegt að sjá nýja samstarfsmenn vaxa af verkum sínum.
               Kristín Baldursdóttir, rekstrardeild Íslandsbanka

Ég mæli með Heimaeyjarkertunum því þau eru stílhrein, falleg, brennslutíminn langur og henta vel við brúðkaup, jarðarfarir, afmæli, skírnir og í sumarbústaðinn.
                   
Ómar í Blómavali

Á undanförnum árum hefur starfsfólk Fjöliðjunnar á Akranesi meðal annars unnið að því að setja öll kort Landmælinga Íslands í kortakápur, sem er mikil nákvæmnisvinna.  Öll vinna hefur verið eins og best verður á kosið og tímaáætlanir ávallt staðist. Samstarfið hefur verið mjög gott og einstaklega ánægjulegt.

Þorvaldur Bragason forstöðumaður upplýsingasviðs Landmælinga Íslands

 

 

Á undanförnum árum hafa viðskipti Nóa-Síríusar við Örva vaxið hratt. Þetta byggist á samkeppnishæfu verði, en ekki síður á framúrskarandi þjónustu og vörugæðum. Það hefur þannig ekki vafist fyrir okkur að taka vörur frá Örva fram yfir svipaðar vörur erlendis frá og er það auðvitað sérstakt fagnaðarefni .Við þökkum fyrir ánægjuleg viðskipti sem við vonumst til að verði áfram vaxandi og óskum starfsfólki Örva velfarnaðar.
                  Finnur Geirsson, framkvæmdastjóri Nóa-Síríusar

Við stóðum fyrir erfiðu vandamáli sem var að geta endurnýtt herðatrén. Til þess að mögulegt sé að endurnýta þau þarf að flokka þau eftir gerðum og stærðum. Örvi fær þarna nokkuð stöðugt verkefni sem reynir á formskyn og talningar og við, hjá Hýsingu, fáum öruggar afhendingar af flokkuðum herðatrjám tilbúnum til notkunar.  Með þessu samstarfi stuðlum við að nýtingu verðmæta og ekki síst því að starfsþjálfunarvinnustaður eins og Örvi haldi velli.  Þess má geta að þetta samstarf hefur óbeint skilað því að einn af starfsmönnum Örva til margra ára starfar nú hjá Hýsingu.
                  Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Hýsingar

Á döfinni
 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  
SAMBANDSAÐILAR


Starfsemi vinnustaða fatlaðra og hæfingarstöðva hefur stuðlað að:

  • Auðugra lífi ótal einstaklinga
  • Auknu fjárhagslegu sjálfstæði
  • Nýjum  tækifærum
  • Sjálfstrausti
  • Almennu heilbrigði
  • Fjárhagslegum og félagslegum ávinningi samfélagsins

Hlutverk - Samtök um vinnu og verkþjálfun  - Kársnesbraut 110 -  200 Kópavogur - Sími 554 3277