Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Önnur þjónusta

Ýmsa aðra þjónustu, en þá sem heyrir undir aðra flokkun á síðunni, bjóða eftirfarandi aðilar:

Ás vinnustofa  s. 562 1620, 562 1633 
Sjá nánar um vöru og þjónustu

Bjarkarás  s. 568 5330 
Sjá nánar um vöru og þjónustu

Blindravinnustofan  s. 525 0025 
Blindravinnustofan tekur að sér ýmiss sérverkefni.

Fjöliðjan  s. 431 2994, 437 201 
Fjöliðjan hefur tekið að sér ýmiss önnur verkefni fyrir fyrirtæki smá og stór t.d merkimiða fyrir HB Granda.

Sólheimar, Brekkukot  s. 480 4400
Gisti- og heilsuheimilið Brekkukot er opið árið um kring. Í boði er gisting í tveimur húsum Brekkukoti og Veghúsum samtals 33 rúm. Allir gestir hafa aðgang að útisundlaug og heitum potti. Í Brekkukoti eru 3 tveggja manna og 7 eins manns herbergi ásamt íbúð með 4 rúmum baðherbergi og eldhúskrók. Rúmgóð eldunaraðstaða auk vistlegrar sjónvarpsstofu og sólstofu, en snyrtingar eru sameiginlegar.

Vinnustaðir ÖBÍ, Ræstingadeild s. 552 6800
Annast daglega ræstingu á húseignum Hússjóðs ÖBÍ í Hátúni 10, þ.e. ræstingu á sameign í háhýsum og tengibyggingu, ásamt húsnæði Vinnustaða ÖBÍ. Nokkrir starfsmenn starfa einnig við ræstingar hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Neyðarlínunni og Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar.

Vinnustofur  Skálatúns s. 530 6617 

VISS s. 482 1803
Sjá nánar saumahornið og basthornið.

Örvi starfsþjálfunarstaður s. 554 3277  

  • Rafverkstæði og samsetningar:  Í Örva önnumst við samsetningar á ýmiskonar raflagnaefni.
  •  Flokkun: Örvi tekur að sér að flokka ýmiss konar vöru. M.a. annast starfsfólk Örva flokkun og þar með endurvinnslu herðatrjáa fyrir nokkrar stærstu og öflugustu verslanir Íslands.

Fréttir

1.7.2010
Sumarlokun
Viss, vinnu- og hæfingarstöðvar á Selfossi og í Þorlákshöfn verða lokaðar frá dags: 05.-30.júlí. 
sjá nánar >>
9.4.2010
Fyrsta uppskera ársins

Lífrænt ræktuðu gúrkurnar úr gróðurhúsi Bjarkaráss eru nú komnar í sölu og styttist óðum í tómatauppskeru. Gróðurhúsið er opið alla virka daga kl. 9 - 12 og 13 - 16.

Í gróðurhúsi Bjarkaráss

sjá nánar >>
2.12.2009
Fjöliðjan afmæli

 

Fjöliðjan 20 ár að Dalbraut 10, Akranesi

 

Þann 22. október sl. voru 20 ár  liðin frá því að Fjöliðjan vinnustaður og hæfing  tók formlega til starfa þá í nýju og glæsilegu húsi að Dalbraut 10.

Í tilefni af þessum tímamótum var aðstandendum allra sem vinna og sækja þjónustu boðið í afmæli á virkum vinnudegi og starfsemin skoðuð.

 
sjá nánar >>

Kertin frá Heimaey eru meðal vinsælustu kerta hjá okkur, sérstaklega kubbarnir og píramídarnir, en við höfum skreytt þá fyrir viðskiptavini okkar. Ég mæli hiklaust með kertum frá Heimaey, fyrir öll tækifæri.  
               Sunneva í Garðheimum

 

 

Besta ehf, gerði pökkunarsamning við Blindravinnustofuna árið 2002. Samstarfið hefur gengið sérlega vel, stjórnendur hafa verið liprir varðandi útfærslur, afgreiðslur og frágang. Vinnan við vöruna er að jafnaði óaðfinnanleg og þökkum við starfsfólki Blindravinnustofunnar góð vinnubrögð. Við mælum með þjónustunni og hvetjum öll fyrirtæki sem þurfa á pökkunar- og eða merkingaþjónustu að halda að kynna sér hana.

Friðrik Ingi Friðriksson, framkvæmdastjóri Besta ehf.

Starfsfólk Vinnustofu Hólabergs, Iðjubergi hefur pakkað inn fyrir okkur bókum og blöðum í fjölda ára og ætíð veitt okkur trausta, heiðarlega og áreiðanlega þjónustu.
               Sigríður Hafdís Benediktsdóttir, Þjónustudeild Eddu útgáfu

Á undanförnum árum hafa viðskipti Nóa-Síríusar við Örva vaxið hratt. Þetta byggist á samkeppnishæfu verði, en ekki síður á framúrskarandi þjónustu og vörugæðum. Það hefur þannig ekki vafist fyrir okkur að taka vörur frá Örva fram yfir svipaðar vörur erlendis frá og er það auðvitað sérstakt fagnaðarefni .Við þökkum fyrir ánægjuleg viðskipti sem við vonumst til að verði áfram vaxandi og óskum starfsfólki Örva velfarnaðar.
                  Finnur Geirsson, framkvæmdastjóri Nóa-Síríusar

Á undanförnum árum hefur starfsfólk Fjöliðjunnar á Akranesi meðal annars unnið að því að setja öll kort Landmælinga Íslands í kortakápur, sem er mikil nákvæmnisvinna.  Öll vinna hefur verið eins og best verður á kosið og tímaáætlanir ávallt staðist. Samstarfið hefur verið mjög gott og einstaklega ánægjulegt.

Þorvaldur Bragason forstöðumaður upplýsingasviðs Landmælinga Íslands

 

 

Það hefur verið gott að skynja stolt starfsmanna rekstrardeildar Íslandsbanka af því að eiga í samstarfi við Klúbbinn Geysi og jafnframt ánægjulegt að sjá nýja samstarfsmenn vaxa af verkum sínum.
               Kristín Baldursdóttir, rekstrardeild Íslandsbanka

Við stóðum fyrir erfiðu vandamáli sem var að geta endurnýtt herðatrén. Til þess að mögulegt sé að endurnýta þau þarf að flokka þau eftir gerðum og stærðum. Örvi fær þarna nokkuð stöðugt verkefni sem reynir á formskyn og talningar og við, hjá Hýsingu, fáum öruggar afhendingar af flokkuðum herðatrjám tilbúnum til notkunar.  Með þessu samstarfi stuðlum við að nýtingu verðmæta og ekki síst því að starfsþjálfunarvinnustaður eins og Örvi haldi velli.  Þess má geta að þetta samstarf hefur óbeint skilað því að einn af starfsmönnum Örva til margra ára starfar nú hjá Hýsingu.
                  Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Hýsingar

Umferðarráð og Blindravinnustofan hafa í mörg ár átt góða samvinnu um gerð hljóðbóka á snældum fyrir umferðarskólann Unga Vegfarendur. Sú nýbreytni var tekin upp á þessu ári að nota geisladiska í stað hljóðsnældu. Hljóðbókunum er dreift til allra 4, 6 og 7 ára barna á landinu. Starfsfólk Blindravinnustofunnar afgreiðir fljótt og vel það sem það er beðið um að gera og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir verkið.

Margrét Sæmundsdóttir, fræðslufulltrúi Umferðarstofu

Ég mæli með Heimaeyjarkertunum því þau eru stílhrein, falleg, brennslutíminn langur og henta vel við brúðkaup, jarðarfarir, afmæli, skírnir og í sumarbústaðinn.
                   
Ómar í Blómavali

Kertin frá Heimaey eru meðal vinsælustu kerta hjá okkur, sérstaklega kubbarnir og píramídarnir, en við höfum skreytt þá fyrir viðskiptavini okkar. Ég mæli hiklaust með kertum frá Heimaey, fyrir öll tækifæri.  
               Sunneva í Garðheimum

 

 

Á döfinni
 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  
SAMBANDSAÐILAR


Starfsemi vinnustaða fatlaðra og hæfingarstöðva hefur stuðlað að:

  • Auðugra lífi ótal einstaklinga
  • Auknu fjárhagslegu sjálfstæði
  • Nýjum  tækifærum
  • Sjálfstrausti
  • Almennu heilbrigði
  • Fjárhagslegum og félagslegum ávinningi samfélagsins

Hlutverk - Samtök um vinnu og verkþjálfun  - Kársnesbraut 110 -  200 Kópavogur - Sími 554 3277