Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Svör við spurningum um vefinn

Hvar finn ég vefi sambandsaðila?

Á dökkbláu stikunni sem liggur þvert  yfir síðuna finnur þú "Sambandsaðilar". Ef þú smellir þar á færð þú upp nöfn allra sambandsaðila og með því að smella á eitthvert nafnið ferð þú inn á vef viðkomandi.

Einnig er "rúlla" á bláa fletinum hægra megin á síðunni þar sem nöfn sambandsaðila renna yfir - hægt er að smella á nöfnin og fara  þannig inn á vef viðkomandi aðila.

Hvernig nota ég vefinn til að finna  vörur eða þjónustu, t.d. ef mig vantar umbúðir?

Á appelsínugula fletinum vinstra megin á síðunni sérð þú lykla eins og t.d. Pökkun / samsetning", "Framleiðsla", "Endurvinnsla", "Umbúðir" o.s.frv. Þannig að ef þig vantar umbúðir þá smellir þú á viðeigandi lykil og færð þá nöfn og upplýsingar um þá staði sem framleiða eða selja umbúðir.

Ef þú leitar eftir upplýsingum um t.d. atvinnu með stuðningi eða námskeið ferð þú eins að.

Hvar finn ég upplýsingar um vinningsnúmer og happdrættisvinninga?

Þær finnur þú undir "Happdrætti" á ljósappelsínugulafletinum vinstra megin á síðunni, einnig getur þú smellt á auglýsinguna þar  fyrir neðan. 

Afhverju hlutverk.is og sameiginlegt merki?

Markmiðið er að efla vitund, skilning og virðingu almennings og forsvarsmanna fyrirtækja á því fjölbreytta og frábæra starfi sem fram fer á vinnustöðum fatlaðra og hæfingarstöðvum - kynna hlutverk þeirra, vörur og þjónustu. Stuðla þannig að fleiri og betri tækifærum, breyttum viðhorfum og betri framtíð í atvinnu- og endurhæfingarmálum fatlaðra einstaklinga.

Hlutverk – merki SVV – er hugsað á svipaðan máta og t.d. umhverfismerki, einfalt merki sem stendur fyrir ríkt innihald. Það stendur fyrir það mikilvæga hlutverk sem sinnt er og það starf sem fram fer á þeim vinnu- og hæfingarstöðvum sem eru aðilar að SVV, en það starf hefur stuðlað að auðugra lífi ótal einstaklinga, auknu fjárhagslegu sjálfstæði þeirra, nýjum tækifærum, sjálfstrausti, vellíðan og almennu heilbrigði, að ógleymdum félagslegum og fjárhagslegum ávinningi samfélagsins.

Hvaða fólk er á myndunum sem birtast á ljósbláafletinum hægra megin á síðunni?

Myndirnar eru af starfsfólki (leiðbeinendum, notendum) þeirra staða sem eru aðilar  að SVV.

Það er textarúlla neðst á forsíðunni - hvaða upplýsingar koma þar fram?

Um er að ræða nokkrar umsagnir viðskiptavina sambandsaðila.

Til  hvaða veffyrirtækis var leitað?

Þegar ákvörðun var tekin um gerð heimasíðu, var lögð áhersla að velja kerfi sem gæfi mikla möguleika, væri einfalt og þægilegt í notkun og byði upp á einföldun útlits, stækkun texta og notkun hjálpartækja fyrir fatlaða. Vefstjóri Outcome hugbúnaðar ehf. sameinar þessa kosti, auk þess sem starfsmenn fyrirtækisins eru mjög faglegir í sínum störfum og veita persónulega og góða  þjónustu.  Sjá nánari um  Outcome www.outcome.is.

Hver  vann útlit  vefsins?

Með útlitshönnun vefs og kynningarefnis var leitað til Lofts Leifssonar á Auglýsingastofu Skaparans. Við hönnunina var lögð áhersla á það að starfsemi okkar snýst um fólk. Grunntónarnir eru appelsínugulur fyrir ferskleika og blár fyrir stöðugleika.  Sjá nánari upplýsingar á www.skaparinn.is

Hvernig var þetta fjármagnað?

Án stuðnings okkar  styrkar- og samstarfsaðila hefði ekki verið mögulegt að fara  í  þetta  átak. Við þökkum Íslandsbanka hf., félagsmálaráðuneytinu, Samtökum atvinnulífsins, Outcome hugbúnaði ehf. og Auglýsingastofu Skaparans fyrir frábært samstarf og þeirra mikilvæga stuðning við uppbyggingar- og atvinnumál fatlaðra.

Fréttir

1.7.2010
Sumarlokun
Viss, vinnu- og hæfingarstöðvar á Selfossi og í Þorlákshöfn verða lokaðar frá dags: 05.-30.júlí. 
sjá nánar >>
9.4.2010
Fyrsta uppskera ársins

Lífrænt ræktuðu gúrkurnar úr gróðurhúsi Bjarkaráss eru nú komnar í sölu og styttist óðum í tómatauppskeru. Gróðurhúsið er opið alla virka daga kl. 9 - 12 og 13 - 16.

Í gróðurhúsi Bjarkaráss

sjá nánar >>
2.12.2009
Fjöliðjan afmæli

 

Fjöliðjan 20 ár að Dalbraut 10, Akranesi

 

Þann 22. október sl. voru 20 ár  liðin frá því að Fjöliðjan vinnustaður og hæfing  tók formlega til starfa þá í nýju og glæsilegu húsi að Dalbraut 10.

Í tilefni af þessum tímamótum var aðstandendum allra sem vinna og sækja þjónustu boðið í afmæli á virkum vinnudegi og starfsemin skoðuð.

 
sjá nánar >>

Ég mæli með Heimaeyjarkertunum því þau eru stílhrein, falleg, brennslutíminn langur og henta vel við brúðkaup, jarðarfarir, afmæli, skírnir og í sumarbústaðinn.
                   
Ómar í Blómavali

Það hefur verið gott að skynja stolt starfsmanna rekstrardeildar Íslandsbanka af því að eiga í samstarfi við Klúbbinn Geysi og jafnframt ánægjulegt að sjá nýja samstarfsmenn vaxa af verkum sínum.
               Kristín Baldursdóttir, rekstrardeild Íslandsbanka

Á undanförnum árum hefur starfsfólk Fjöliðjunnar á Akranesi meðal annars unnið að því að setja öll kort Landmælinga Íslands í kortakápur, sem er mikil nákvæmnisvinna.  Öll vinna hefur verið eins og best verður á kosið og tímaáætlanir ávallt staðist. Samstarfið hefur verið mjög gott og einstaklega ánægjulegt.

Þorvaldur Bragason forstöðumaður upplýsingasviðs Landmælinga Íslands

 

 

Besta ehf, gerði pökkunarsamning við Blindravinnustofuna árið 2002. Samstarfið hefur gengið sérlega vel, stjórnendur hafa verið liprir varðandi útfærslur, afgreiðslur og frágang. Vinnan við vöruna er að jafnaði óaðfinnanleg og þökkum við starfsfólki Blindravinnustofunnar góð vinnubrögð. Við mælum með þjónustunni og hvetjum öll fyrirtæki sem þurfa á pökkunar- og eða merkingaþjónustu að halda að kynna sér hana.

Friðrik Ingi Friðriksson, framkvæmdastjóri Besta ehf.

Við stóðum fyrir erfiðu vandamáli sem var að geta endurnýtt herðatrén. Til þess að mögulegt sé að endurnýta þau þarf að flokka þau eftir gerðum og stærðum. Örvi fær þarna nokkuð stöðugt verkefni sem reynir á formskyn og talningar og við, hjá Hýsingu, fáum öruggar afhendingar af flokkuðum herðatrjám tilbúnum til notkunar.  Með þessu samstarfi stuðlum við að nýtingu verðmæta og ekki síst því að starfsþjálfunarvinnustaður eins og Örvi haldi velli.  Þess má geta að þetta samstarf hefur óbeint skilað því að einn af starfsmönnum Örva til margra ára starfar nú hjá Hýsingu.
                  Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Hýsingar

Á undanförnum árum hafa viðskipti Nóa-Síríusar við Örva vaxið hratt. Þetta byggist á samkeppnishæfu verði, en ekki síður á framúrskarandi þjónustu og vörugæðum. Það hefur þannig ekki vafist fyrir okkur að taka vörur frá Örva fram yfir svipaðar vörur erlendis frá og er það auðvitað sérstakt fagnaðarefni .Við þökkum fyrir ánægjuleg viðskipti sem við vonumst til að verði áfram vaxandi og óskum starfsfólki Örva velfarnaðar.
                  Finnur Geirsson, framkvæmdastjóri Nóa-Síríusar

Starfsfólk Vinnustofu Hólabergs, Iðjubergi hefur pakkað inn fyrir okkur bókum og blöðum í fjölda ára og ætíð veitt okkur trausta, heiðarlega og áreiðanlega þjónustu.
               Sigríður Hafdís Benediktsdóttir, Þjónustudeild Eddu útgáfu

Umferðarráð og Blindravinnustofan hafa í mörg ár átt góða samvinnu um gerð hljóðbóka á snældum fyrir umferðarskólann Unga Vegfarendur. Sú nýbreytni var tekin upp á þessu ári að nota geisladiska í stað hljóðsnældu. Hljóðbókunum er dreift til allra 4, 6 og 7 ára barna á landinu. Starfsfólk Blindravinnustofunnar afgreiðir fljótt og vel það sem það er beðið um að gera og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir verkið.

Margrét Sæmundsdóttir, fræðslufulltrúi Umferðarstofu

Kertin frá Heimaey eru meðal vinsælustu kerta hjá okkur, sérstaklega kubbarnir og píramídarnir, en við höfum skreytt þá fyrir viðskiptavini okkar. Ég mæli hiklaust með kertum frá Heimaey, fyrir öll tækifæri.  
               Sunneva í Garðheimum

 

 

Ég mæli með Heimaeyjarkertunum því þau eru stílhrein, falleg, brennslutíminn langur og henta vel við brúðkaup, jarðarfarir, afmæli, skírnir og í sumarbústaðinn.
                   
Ómar í Blómavali

Á döfinni
 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  
SAMBANDSAÐILAR


Starfsemi vinnustaða fatlaðra og hæfingarstöðva hefur stuðlað að:

  • Auðugra lífi ótal einstaklinga
  • Auknu fjárhagslegu sjálfstæði
  • Nýjum  tækifærum
  • Sjálfstrausti
  • Almennu heilbrigði
  • Fjárhagslegum og félagslegum ávinningi samfélagsins

Hlutverk - Samtök um vinnu og verkþjálfun  - Kársnesbraut 110 -  200 Kópavogur - Sími 554 3277