Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Lífræn ræktun

Lífræn ræktun byggir á því að varðveita frjósemi jarðvegsins. Stunduð er skiptirækt til að viðhalda efnum í moldinni sem hver tegund þarfnast og minnka áhættu á sjúkdómum. Notaðar eru lífrænar varnir við ræktunina, s.s. húsdýraáburður, þörungamjöl og lífrænn áburður sem er unnin úr lífrænum úrgangi með safnhaugagerð.

Bjarkarás  s. 568 5330 
Í gróðurhúsi fer fram lífræn ræktun grænmetis.  Úrvalið er nokkuð misjafnt eftir árstíma en frá apríl og fram í október er hægt að kaupa afurðirnar í gróðurhúsinu á opnunartíma Bjarkaráss, kl 9 – 16 alla virka daga.

Sólheimar   s. 480 4482

  • Sunna á Sólheimum framleiðir lífrænt ræktað grænmeti í gróðurhúsum og útimatjurtagörðum. Lífrænt ræktað grænmeti frá Sunnu er selt til mötuneytis Sólheima, verslunarinnar Völu og á höfuðborgarsvæðinu. Framleiðsla Sunnu er vottuð af Vottunarstofunni Túni.
    Helstu framleiðslutegundir:  Tómatar, agúrkur, paprika, gulrætur, kartöflur, kál og annað útiræktað grænmeti.
  • Skógræktarstöðin Ölur á Sólheimum hefur vottorð frá vottunarstofunni Tún ehf, um að afurðir stöðvarinar teljist lífrænar samkvæmt ýtrustu stöðlum þar að lútandi.
    Ölur státar af góðu úrvali af trjám, runnum og sumarblómum. Í Ölri leggjum við mikla áherslu á persónulega ráðgjöf og góða þjónustu. Ölur hefur reynt að sérhæfa sig í ræktun á harðgerðum trjám og runnum og notar nær eingöngu sjálfsaflað Íslenskt fræ. 

Fréttir

1.7.2010
Sumarlokun
Viss, vinnu- og hæfingarstöðvar á Selfossi og í Þorlákshöfn verða lokaðar frá dags: 05.-30.júlí. 
sjá nánar >>
9.4.2010
Fyrsta uppskera ársins

Lífrænt ræktuðu gúrkurnar úr gróðurhúsi Bjarkaráss eru nú komnar í sölu og styttist óðum í tómatauppskeru. Gróðurhúsið er opið alla virka daga kl. 9 - 12 og 13 - 16.

Í gróðurhúsi Bjarkaráss

sjá nánar >>
2.12.2009
Fjöliðjan afmæli

 

Fjöliðjan 20 ár að Dalbraut 10, Akranesi

 

Þann 22. október sl. voru 20 ár  liðin frá því að Fjöliðjan vinnustaður og hæfing  tók formlega til starfa þá í nýju og glæsilegu húsi að Dalbraut 10.

Í tilefni af þessum tímamótum var aðstandendum allra sem vinna og sækja þjónustu boðið í afmæli á virkum vinnudegi og starfsemin skoðuð.

 
sjá nánar >>

Við stóðum fyrir erfiðu vandamáli sem var að geta endurnýtt herðatrén. Til þess að mögulegt sé að endurnýta þau þarf að flokka þau eftir gerðum og stærðum. Örvi fær þarna nokkuð stöðugt verkefni sem reynir á formskyn og talningar og við, hjá Hýsingu, fáum öruggar afhendingar af flokkuðum herðatrjám tilbúnum til notkunar.  Með þessu samstarfi stuðlum við að nýtingu verðmæta og ekki síst því að starfsþjálfunarvinnustaður eins og Örvi haldi velli.  Þess má geta að þetta samstarf hefur óbeint skilað því að einn af starfsmönnum Örva til margra ára starfar nú hjá Hýsingu.
                  Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Hýsingar

Það hefur verið gott að skynja stolt starfsmanna rekstrardeildar Íslandsbanka af því að eiga í samstarfi við Klúbbinn Geysi og jafnframt ánægjulegt að sjá nýja samstarfsmenn vaxa af verkum sínum.
               Kristín Baldursdóttir, rekstrardeild Íslandsbanka

Umferðarráð og Blindravinnustofan hafa í mörg ár átt góða samvinnu um gerð hljóðbóka á snældum fyrir umferðarskólann Unga Vegfarendur. Sú nýbreytni var tekin upp á þessu ári að nota geisladiska í stað hljóðsnældu. Hljóðbókunum er dreift til allra 4, 6 og 7 ára barna á landinu. Starfsfólk Blindravinnustofunnar afgreiðir fljótt og vel það sem það er beðið um að gera og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir verkið.

Margrét Sæmundsdóttir, fræðslufulltrúi Umferðarstofu

Kertin frá Heimaey eru meðal vinsælustu kerta hjá okkur, sérstaklega kubbarnir og píramídarnir, en við höfum skreytt þá fyrir viðskiptavini okkar. Ég mæli hiklaust með kertum frá Heimaey, fyrir öll tækifæri.  
               Sunneva í Garðheimum

 

 

Starfsfólk Vinnustofu Hólabergs, Iðjubergi hefur pakkað inn fyrir okkur bókum og blöðum í fjölda ára og ætíð veitt okkur trausta, heiðarlega og áreiðanlega þjónustu.
               Sigríður Hafdís Benediktsdóttir, Þjónustudeild Eddu útgáfu

Á undanförnum árum hefur starfsfólk Fjöliðjunnar á Akranesi meðal annars unnið að því að setja öll kort Landmælinga Íslands í kortakápur, sem er mikil nákvæmnisvinna.  Öll vinna hefur verið eins og best verður á kosið og tímaáætlanir ávallt staðist. Samstarfið hefur verið mjög gott og einstaklega ánægjulegt.

Þorvaldur Bragason forstöðumaður upplýsingasviðs Landmælinga Íslands

 

 

Á undanförnum árum hafa viðskipti Nóa-Síríusar við Örva vaxið hratt. Þetta byggist á samkeppnishæfu verði, en ekki síður á framúrskarandi þjónustu og vörugæðum. Það hefur þannig ekki vafist fyrir okkur að taka vörur frá Örva fram yfir svipaðar vörur erlendis frá og er það auðvitað sérstakt fagnaðarefni .Við þökkum fyrir ánægjuleg viðskipti sem við vonumst til að verði áfram vaxandi og óskum starfsfólki Örva velfarnaðar.
                  Finnur Geirsson, framkvæmdastjóri Nóa-Síríusar

Besta ehf, gerði pökkunarsamning við Blindravinnustofuna árið 2002. Samstarfið hefur gengið sérlega vel, stjórnendur hafa verið liprir varðandi útfærslur, afgreiðslur og frágang. Vinnan við vöruna er að jafnaði óaðfinnanleg og þökkum við starfsfólki Blindravinnustofunnar góð vinnubrögð. Við mælum með þjónustunni og hvetjum öll fyrirtæki sem þurfa á pökkunar- og eða merkingaþjónustu að halda að kynna sér hana.

Friðrik Ingi Friðriksson, framkvæmdastjóri Besta ehf.

Ég mæli með Heimaeyjarkertunum því þau eru stílhrein, falleg, brennslutíminn langur og henta vel við brúðkaup, jarðarfarir, afmæli, skírnir og í sumarbústaðinn.
                   
Ómar í Blómavali

Við stóðum fyrir erfiðu vandamáli sem var að geta endurnýtt herðatrén. Til þess að mögulegt sé að endurnýta þau þarf að flokka þau eftir gerðum og stærðum. Örvi fær þarna nokkuð stöðugt verkefni sem reynir á formskyn og talningar og við, hjá Hýsingu, fáum öruggar afhendingar af flokkuðum herðatrjám tilbúnum til notkunar.  Með þessu samstarfi stuðlum við að nýtingu verðmæta og ekki síst því að starfsþjálfunarvinnustaður eins og Örvi haldi velli.  Þess má geta að þetta samstarf hefur óbeint skilað því að einn af starfsmönnum Örva til margra ára starfar nú hjá Hýsingu.
                  Guðmundur Oddgeirsson, framkvæmdastjóri Hýsingar

Á döfinni
 «September 2010» 
sunmánþrimiðfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930  
SAMBANDSAÐILAR


Starfsemi vinnustaða fatlaðra og hæfingarstöðva hefur stuðlað að:

  • Auðugra lífi ótal einstaklinga
  • Auknu fjárhagslegu sjálfstæði
  • Nýjum  tækifærum
  • Sjálfstrausti
  • Almennu heilbrigði
  • Fjárhagslegum og félagslegum ávinningi samfélagsins

Hlutverk - Samtök um vinnu og verkþjálfun  - Kársnesbraut 110 -  200 Kópavogur - Sími 554 3277